2. – 9. júní 2025 8 dagar 7 nætur
Fararstjóri: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Króatía er ríki á Balkanskaga í Suðaustur-Evrópu og er einn af okkar áfangstöðum þetta árið. Króatía þykir einn af fegurstu áfangastöðum Evrópu, þar sem sameinast á einum stað gott veðurfar, einstök náttúrufegurð og ótrúleg menning Adríahafsins. Ef þú skoðar kort muntu fljótt taka eftir því að Króatía hefur undarlega lögun og margir halda að það líti út eins og dreki. Kannski er það ástæðan fyrir því að stór hluti sjónvarps-þáttanna Game of Thrones var tekinn upp hér.
Í þessari ferð okkar ætlum við að heimsækja Istria skagann sem liggur við Adriahafið og skoða Kvarner flóann. Istria (Istra) er þríhyrndur skagi sem gengur út í Adríahafið nyrst í Króatíu og syðst í Slóveníu. Þessi fallegi skagi er eitt vinsælasta ferðamannasvæði Króatíu og þangað hafa streymt gestir síðan á sjöunda áratug 20. aldarinnar til að heimsækja staði eins og Rovinj, Vrsar, Umag, Novigrad og bæinn Porec sem er einna vinsælastur af þeim öllum.
Það eru orðatiltæki sem þú getur notað með kostum í Króatíu: “Dobar dan”, sem þýðir “góðan daginn”, og “kako si?”, sem þýðir “hvernig hefurðu það?”. Eða “hoćemo na pivo”, sem þýðir “drekkum bjór”. Króatar eru mjög vinalegt fólk og ef þeir bjóða þér heim verður komið fram við þig eins og konung. Þú færð ekki að fara ef þú hefur ekki borðað og drukkið nóg. Góð tónlist og spjall um lífið er mjög eðlilegt.
Við fljúgum til borgarinnar Pula og gistum þar í 7 nætur á góðu hóteli. Hótelið er á Verdula skaganum sem er eitt vinsælasta svæði fyrir frí í Pula og er Hotel Park Plaza Arena er staðsett beint við draumaströnd Hawaii Beach.
Við heimsækjum Porec en í ljósi langrar sögu bæjarins er heimsókn í Gamla bæinn nauðsynleg, rölta um hinar fjölmörgu litlu steinsteyptu götur er fullkomin leið til að fá virkilega tilfinningu fyrir bænum og hvernig hann var einu sinni og ekki síst vegna fjölmargra sögustaða hans. Einkum er Euphrasian basilíkan frá 6. öld (fyrir neðan) frábærlega varðveitt og er vel þekkt fyrir fallega gullmósaík. Basilíkan er í raun safn ýmissa bygginga, þar á meðal skírnarhús og biskupshöllina. Aðgangur að kirkjunni er ókeypis þó lítið framlag sé vel þegið. Basilíkan var lýst á heimsminjaskrá UNESCO árið 1997.
Rovinj sem er heillandi fagur bær sem við komum til með þröngum, steinlögðum götum, sem þykir mörgum gestum mjög ítalskur í eðli sínu. Bærinn er frægur fyrir St Euphemia-dómkirkjuna, hæsta kirkjuturninn í Istria í 61 metra hæð. Við endum þessa flottu dagsferð á Istríu kvöldi á bóndabýli þar sem er framreiddur er þriggja rétta kvöldverður með drykkjum og sýndir þjóðdansar.
Einnig verður heilsdagsferð til eyjunnar Krk sem er stærsta eða næst stærsta eyja Króatíu og er í Kvarner flóanum. Mjög falleg eyja og verður frábært að fá að skoða alla þessa staði.
Ferðatilhögun:
Dagur 1 – 2. júní 2025 mánudagur Ísland – Pula Króatía
Flogið til Pula í Króatíu og er brottför frá Keflavík kl. 14:50 áætluð lending í Pula kl. 21:10 að staðartíma. Akstur frá flugvelli að hóteli tekur tæplega 30 mínútur. Gist er í 7 nætur á Park Plaza Arena Pula með hálfu fæði
Dagur 2 – 3. júní 2025 þriðjudagur Gönguferð um Pula
Eftir morgunverð kl. 11:00 röltum við saman frá hótelinu í miðbæ Pula og skoðum okkur um m.a um Arenuna sem er Pula Arena og er sjötta stærsta hringleikahús sinnar tegundar. Í meira en 60 ár hefur hið virðulega Pula hringleikahús verið einn af vettvangi kvikmyndahátíðarinnar í Pula. Hátíðin, sem hefur verið haldin síðan 1954, er elsta kvikmyndahátíð í Króatíu. Hin virtu króatísku kvikmyndaverðlaun “Golden Arena” eru einnig veitt á hátíðinni.
Gangan er á svo gott sem jafnsléttu og er farið hægt yfir. Ekki er farið inn í nein mannvirki en gangan gefur ykkur vonandi hugmyndir um það hvernig þið viljið verja frídögunum í Pula. Eftir gönguna er tilvalið að fá sér hádegissnarl, kíkja í verslanir eða á söfn áður en þið farið til baka á hótelið.
Dagur 3 – 4. júní 2025 miðvikudagur Frjáls dagur – slökun
Nú er kjörið tækifæri til að njóta sín á eigin vegum, flatmaga á bekk við sundlaugina á hótelinu eða að fara í borgina, fara í búðir eða söfn eða bara í göngutúra.
Dagur 4 – 5. júní 2025 fimmtudagur Dagsferð til Porec og Rovinj með Istríu-kvöldskemmtun
Við leggjum af stað í þessa flottu ferð um kl. 13:00 og þar sem er kvöldverður er í boði í þessari ferð og er væntanlega hægt að tala við hótelið um að breyta kvöldverði hjá þeim í hádegisverð. Ekið verður frá Pula til norðurs til strandbæjanna Porec og Rovinj og endum við skoðunarferðina þennan dag á bóndabýli þar sem fjölskyldan og aðrir taka á móti hópnum með drykk og snarli. Síðan er gengið inn fyrir, þar sem borinn er fram þríréttaður kvöldverður ásamt drykkjum, allt að hætti Istríubúa, en Istríubúar eru þekktir fyrir afbragðs góða matargerð. Á milli rétta verða sýndir þjóðdansar, þjóðleg tónlist spiluð og slegið á létta strengi í leik og dansi með þátttöku gesta.
Dagur 5 – 6. júní 2025 föstudagur Frjáls dagur – slökun
Kjörið tækifæri til að njóta sín á eigin vegum, flatmaga á bekk við sundlaugina á hótelinu eða að fara í borgina, fara í búðir eða söfn eða bara í göngutúra.
Dagur 6 – 7. júní 2025 laugardagur Heilsdagsferð til Krk eyjunnar
Morgunverður þennan daginn verður tekinn snemma því að kl. 9:00 leggjum við af stað í dásamlega ferð og verður ekið frá PULA yfir á eyjuna Krk sem er stærsta eyja landsins. Hún er tengd meginlandinu með Krk brúnni eða svokallaðri Tito-brú eins og hún hét áður og er 1,4 km að lengd. Krk er kölluð Gullna eyjan frá fornu fari vegna milds loftslags, gróskumikils gróðurs og hagstæðrar staðsetningar í Kvarner-flóanum. Við ökum til höfuðstaðs eyjunnar en þar m.a í gamla miðbænum er hægt að finna fjölmörg gallerý og sýningar fyrir þá sem hafa áhuga á list. Frankopan fjölskyldukastalinn er staðsettur á Kamplin Square. Virkið var byggt á milli 12. og 14. aldar af Frankopan furstunum. Sérstaklega þess virði að skoða réttarsalinn, virkismúrana og turna kastalans en gamli virkisbærinn Krk, er menningarmiðstöð eyjunnar og upplifum við hann á skemmtilegri göngu.
Dagur 7 – 8. júní 2025 Hvítasunnudagur Frjáls dagur – Sameiginlegur hittingur
Þetta er síðasti dagurinn í ferðinni, frjáls dagur fram að sameiginlegum hittingi að barnum fyrir kvöldverðinn. Nú er um að gera er að njóta lífsins í Pula, fara á ströndina, flatmaga við hótelið eða gera eitthvað mjög skemmtilegt.
Dagur 8 – 9. júní 2025 mánudagur Annar í Hvítasunnu Pula – Keflavík
Nú er komið að heimferð og verður lagt af stað út á flugvöll kl. 19:00. Brottför frá Pula er kl. 22:30 í beinu flugi til Íslands. Áætluð lending í Keflavík er kl. 01.10 að staðartíma aðfaranótt þriðjudags 10. Júní 2025.
VERÐ:
Verð á mann sem er niðurgreitt í tvíbýli er kr. 239.900
Verð á mann sem er niðurgreitt í einbýli er kr. 351.900 Lágmarks fjöldi 30
Verð á mann sem er niðurgreitt í tvíbýli er kr. 254.800
Verð á mann sem er niðurgreitt í einbýli er kr. 365.900 Lágmarks fjöldi 25
Staðfestingargjald er kr. 70.000 og er óafturkræft
Innifalið í verði er:
Flug, skattar, 20 kg taska og handfarangur 42x32x25 cm þarf að komast undir sætið fyrir framan farþegann.
Gisting í 7 nætur á Hotel Park Plaza Arena með hálfu fæði
Dagsferð til Porec, Rovinj og á kvöldskemmtun Ístríu kvöld (dagur 4)
Dagsferð til Krk eyjunnar (dagur 6)
Akstur til og frá flugvelli erlendis
Ekki innifalið í verði er:
Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
Hádegisverðir.
Þjórfé fyrir bílstjóra og staðarleiðsögumenn
Forfalla- og ferðatryggingar
Íslensk fararstjórn á meðan á allri ferðinni stendur sem er hópnum innan handar og segir farþegum frá ýmsum fróðleik um sögu og menningu Króatíu í rútu.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.
Athugið sérstaklega:
Í ferðum á vegum Húsmæðraorlofsins þurfa konur að vera færar um að geta komist leiðar sinnar óstuddar, því alltaf þarf að ganga eitthvað í skoðunarferðum en gönguleiðir eru oftast ekki mikið á fótinn né mjög langar.
Mikilvægar upplýsingar:
- Munið eftir gildum vegabréfum í utanlandsferðum.
- Forfallatrygging er ekki innifalin í staðfestingargjaldi.
- Ferða- og forfallatryggingar eru á eigin ábyrgð.
- Skatta- og gengisbreytingar gætu breytt auglýstu verði.
- Orlofsnefnd húsmæðra ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum á
- ferðaáætlun vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna.
- Vísað er í almenna ferðskilmála á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
- Hafið ætíð evrópskt sjúkratryggingakort „E-111“ frá Sjúkratryggingum
- Íslands meðferðis í utanlandsferðir. Smellið hér til að sækja um kortið.
- Konur sem búa í öðru sveitarfélagi geta farið í ferðir, en verða sjálfar að sækja
- um niðurgreiðslu til orlofsnefndar í sínu umdæmi.
- Staðfestingargjald vegna ferða þarf að greiða innan viku eftir að þátttaka hefur verið samþykkt. Verði gjaldið ekki greitt innan þess tíma fellur pöntunin niður. Gengið skal frá fullnaðargreiðslu ferðar á viðkomandi ferðaskrifstofu, nema annað sé tekið fram.
Vinsamlegast boðið forföll eins skjótt og auðið er. Endurgreiðslur eru skv.
almennum ferðaskilmálum á heimsíðu Heimsferða sjá hér.
Varðandi aðra skilmála vísast í “almenna ferðaskilmála” á heimasíðu Heimsferða Ferðaskilmálar