Sigling á Dóná um helstu perlur Austurríkis, Slóvakíu og Ungverjalands – 4 landa sýn

18.- 26. september 2025 9 dagar 8 nætur

Glæsileg fljótasigling á Dóná sem á sín upptök í Svartaskógi í Þýskalandi og er næststærsta fljót Evrópu 2.850 km og rennur til Svartahafsins. Siglt er um Austurríki, Slóvakíu og Ungverjaland þar sem fjölbreytilegt landslag fallegar, gamlar borgir, glæsilegir kastalar ásamt mörgum litlum þorpum sem skarta sínu fegursta.
Á siglingu okkar til Vínar líðum við áfram um fjölbreytilegt landslag þar sem fallegar, borgir, glæsilegir kastalar og lítil þorp sem skapa fallegt landslag. Sérstaklega þykir Wachaudalurinn fallegur og er hann m.a. á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta er í raun algjört must-see.

Við fljúgum beint til München og ökum til Passau þar sem við gistum þar eina nótt áður en farið verður um borð í skipið A Rosa Flora sem er næst nýjasta A Rosa skipaflotans skip frá árinu 2014. Við siglum í gegnum Wachau dalinn sem talinn er einn af fegurstu dölum Austurríkis á milli Krems og Melk og er Wachau á heimsminjaskrá UNESCO. Þegar til Vínar er komið, sem er höfuðborg Austurríkis, verður boðið upp á ýmsar skoðunarferðir og verða þær kynntar fljótlega.
Eftir skemmtilega dvöl í höfuðborginni siglum við í átt að Budapest með stuttri viðkomu í Eztergom sem áður var höfuðborg Ungverjalands en nú er það Búdapest. Hægt er að dást að henni beint frá ánni. Kastalaturninn og voldug basilíkan mynda ótrúlega sjón, sem rís upp af bröttum bakka Dóná. Búdapest er næsta stop og komum við þangað um eftirmiðdaginn og stoppum yfir nótt. Borgin skiptist í Buda og Pest og er margt að skoða í þessari borg. Veistu hvað eru margar brýr á milli borgarhlutanna?

Eftir að hafa skoðað Búdapest siglum við til Bratislava en þar búa u.þ.b. 450.000 manns og er hún staðsett á vinstri bakka Dóná, er ung höfuðborg – reyndar sú yngsta í Evrópu.
Nú er komið að því að sigla heima á leið og gerum við stuttan stans í borginni Krems sem liggjur við Dónau og ekki langt frá austurrísku höfuðborginni Vínarborg. Við líðum áfram og gerum aftur stutt stop í borginni Melk, sem er kölluð „Gáttin að Wachau“, og getum við dáðst að glæsilegu landslaginu.

Ferðatilhögun:

Dagur 1 – 18. September 2025 fimmtudagur Keflavík – München – Passau
Flogið frá Keflavík til München FI 532 kl. 7:20 lending í München kl. 13:05 þar sem
tekið verður á móti hópnum á flugvellinum. Ekið verður frá flugvelli til Passau í ca. 2 tíma sjá hér og verður gist í eina nótt á MK hótelinu sem er ný uppgert eftir mikil flóð í Passau sjá hér. Morgunverður innifalinn en ekki kvöldverður.
Passau í Þýskalandi, stendur við ármót Dónár, Inn og Ilz í Bæjaralandi. Árnar þrjár setja svo fallegan svip á borgina að hún er talin með sjö fallegustu borgarstæðum í heimi.

Dagur 2 – 19. September 2025 föstudagur Farið um borð í A Rosa Flora

Frjáls dagur fram yfir hádegi og því tilvalið að skreppa og skoða Passau. Síðar um daginn fer rúta með okkur frá hótelinu ekur yfir landamærin til Engelhartszell í Austurríki þar sem skipið okkar A Rosa Flora liggur sjá video hér og hefst siglingin kl. 16 þennan dag. Við verðum þá búnar að koma okkur fyrir í herbergjunum okkar í skipinu.

Dagur 3 – 20. September 2025 laugardagur Wachaudalurinn – Vín koma kl: 14:00

Eftir siglingu um Wachau – dalinn sem er á Heimsminjaskrá UNESCO komum við til Vínar er einstaklega falleg borg og auðvitað þekkt fyrir Nýjárstónleikana sem eru ávallt sýndir beint á RÚV á Nýjársdag. Í Vín er svo margt að skoða og hefur hún upp á að bjóða mikið af söfnum, galleríum, höllum og kastala, auk ríkisóperunnar og mörgum leikhúsum, nýtur borgin líflegs menningarlífs allt árið um kring. Það er ekki leiðinlegt að fara í Óperuna í Vín og sjá eitthvað skemmtilegt um kvöldið sjá dagskrá hér

Dagur 4 – 21. September 2025 sunnudagur Vín brottför kl. 18:30

Schönbrunn-höllin er líka þess virði að heimsækja. Hin fallega barokksamstæða er á heimsminjaskrá UNESCO og státar einnig af nútímatækni: vönduð sýndarveruleika-kvikmynd sem gerir gestum kleift að endurupplifa sögu hallarinnar. Einnig er gaman að skoða St Stephen’s dómkirkju Vínarborgar og er hún nánast helgidómur fyrir borgarbúa. Kirkjan er meðal merkustu gotnesku bygginga Austurríkis og ein einkennisbygginga borgarinnar. Ekki má gleyma að fara á Café Sacher Wien og fá sér bestu Sachertertu með kaffinu.

Dagur 5 – 22. September 2025 mánudagur Búdapest – koma kl. 15:00

Veistu hversu margar brýr Búdapest hefur? Alls eru þær sjö – og spanna þær ána milli hverfanna Buda og Pest. Sú þekktasta er líklega Széchenyi keðjubrúin. Skoðaðu sjálf glæsileg mannvirki Búdapestar þegar þú siglir niður Dóná. Og ef þú ferð út á sólpallinn á A-ROSA Flora skipinu, muntu hafa óhindrað útsýni yfir fræga þinghúsið í Búdapest. Hin fullkomna leið til að upplifa töfrandi borg.


Dagur 6 – 23. September 2025 þriðjudagur Búdapest brottför kl: 15:00

Skoðaðu enn meira af ungversku höfuðborginni á öðrum degi þínum í Búdapest. Uppgötvaðu hina sögulegu Fisherman’s Bastion og njóttu stórbrotins útsýnis yfir borgina. Næst stærsta borgin við Dóná er einnig heimili hinna frægu Gellért-baða. Hér getur þú virkilega slakað á í mjög svo notalegu andrúmslofti.

Dagur 7 – 24. September 2025 miðvikudagur Bratislava koma kl. 9:00 brottför kl. 15:30

Bratislava yngsta höfuðborg Evrópu þykir mjög falleg. Það er gaman að skoða gamla bæinn þar sem hægt er að sjá ummerki um austurrísk-ungverska heimsveldið hvert sem þú ferð. Þessi rólega borg barokks og rokkókó, halla, lista- og kaffihúsa er fullkominn staður til að rölta um og dást að fallegum sjónarhornum og slaka á.

Dagur 8 – 25. September 2025 fimmtudagur Sigling – stutt stop í Krems og Melk

Þennan morgun tökum við snemma en kl. 8 er boðið upp á skoðunarferð um Krems. Krems við Dóná er ekki langt frá austurrísku höfuðborginni Vínarborg. Borgin er hluti af Wachau í Dónárdalnum og er á heimsminjaskrá UNESCO.
Síðar um daginn eða kl.12:30 er stoppað í borginni Melk og er heimsókn þangað, „Gáttin að Wachau“, Dónárdals sem er á heimsminjaskrá UNESCO, og er svo sannarlega hægt að dáðst að glæsilegu landslaginu. Í Melk er Melk Abbey, Benediktar klaustur. Þetta er svæði þar sem bæir og landslag virðast vera í fullkomnu samræmi.

Dagur 9 – 26. September 2025 föstudagur Passau- München – heimferð kl. 9:00

Eftir þessa flottu siglingu er komið að heimferð. Rúta sækir okkur kl. 9:00 og er ekið til München.
Brottför frá München með Icelandair flug FI 533 kl. 14:05 og er áætluð lending í Keflavík kl. 16:00

  1. dekk A Klefi með glugga hátt uppi á vegg 1 klefi í boði
  2. dekk C Klefi með frönskum svölum 12 klefar í boði
  3. dekk D Klefi með frönskum svölum 3 klefar í boði

kr: 237.000 einbýli kr. 349.500
kr: 278.000 einbýli kr. 413.300
kr: 291.000 einbýli kr. 433.800

Verð á mann sem er niðurgreitt

  1. dekk A Klefi með glugga hátt uppi á vegg 1 klefi í boði kr: 237.000 einbýli kr. 349.500
  2. dekk C Klefi með frönskum svölum 12 klefar í boði kr: 278.000 einbýli kr. 413.300
  3. dekk D Klefi með frönskum svölum 3 klefar í boði kr: 291.000 einbýli kr. 433.800

Innifalið:

  • Flug, flugvallaskattar og farangur 23 kg og 10 kg í handfarangri.
  • Hótel, ein nótt í Passau með morgunverði.
  • Akstur milli flugvallar, hótels og skips.
  • Sigling 7 nætur með öllu inniföldu, sem er fullt fæði, morgun, hádegis og kvöldverður og létt snarl á
    kaffitíma.
  • Kvöldverður: Val er milli hlaðborðs og af matseðli (Greiða þarf sérstaklega)
  • Drykkir allan daginn úrval af óáfengum og áfengum drykkjum. Sloppar og snyrtivörur í klefum.
  • Líkamsrækt og Gufubað.
  • WIFI
  • Skemmtun og afþreying um borð.

Ekki innifalið:
Kvöldverður í Passau á komudegi

Ekki innifalið um borð
• Nudd og annað dekur er með 15% afslætti.
• Skoðunarferðir í landi á viðkomustöðum A ROSA FLORA

Athugið sérstaklega:
Í ferðum á vegum Húsmæðraorlofsins þurfa konur að vera færar um að geta komist leiðar sinnar óstuddar, því alltaf þarf að ganga eitthvað í skoðunarferðum en gönguleiðir eru oftast ekki mikið á fótinn né mjög langar.

ATH: Dagskrá ferðarinnar getur mögulega raskast ef að breytingar verða á vatnsyfirborði siglingaleiðanna, mögulega bilunar í skipastigum eða vegna annarra óvæntra aðstæðna

Umsóknarfrestur á þessari ferð er aðeins til 15. febrúar n.k.

Staðfestingargjald sem er kr. 40.000 á mann.
Staðfestingargjaldið er óafturkræft

Lokagreiðsla er síðan 6-8 vikum fyrir brottför
Hægt er að nota vildarpunkta upp í staðfestingargjald eða lokagreiðslu.

Gjafabréf. Inneignir hjá Icelandair eða stéttafélags gjafabréf er hægt að nota upp í ferðina.

Kort af siglingarleiðinni

  • Mikilvægar upplýsingar:
  • Munið eftir gildum vegabréfum í utanlandsferðum.
  • Forfallatrygging er ekki innifalin í staðfestingargjaldi.
  • Ferða- og forfallatryggingar eru á eigin ábyrgð.
  • Skatta- og gengisbreytingar gætu breytt auglýstu verði.
  • Orlofsnefnd húsmæðra ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum á ferðaáætlun vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna.
  • Vísað er í almenna ferðskilmála á heimasíðu ferðaskrifstofunnar.
  • Hafið ætíð evrópskt sjúkratryggingakort „E-111“ frá Sjúkratryggingum
  • Íslands meðferðis í utanlandsferðir. Smellið hér til að sækja um kortið.
  • Konur sem búa í öðru sveitarfélagi geta farið í ferðir, en verða sjálfar að sækja um niðurgreiðslu til orlofsnefndar í sínu umdæmi.
  • Staðfestingargjald vegna ferða þarf að greiða innan 7 daga eftir að þátttaka hefur verið samþykkt. Verði gjaldið ekki greitt innan þess tíma fellur pöntunin niður.
  • Gengið skal frá fullnaðargreiðslu ferðar 6 – 8 vikum fyrir brottför á viðkomandi ferðaskrifstofu, nema annað sé tekið fram.

Vinsamlegast boðið forföll eins skjótt og auðið er í tölvpósti orlofgk@gmail.com.
Endurgreiðslur eru skv. almennum ferðaskilmálum á heimsíðu VITA smellið hér

Varðandi ýmsar algengar spurningar smellið hér