FLUG:
Flugtíminn til Valencia er um fjórar klukkustundir og 20 mínútur. Flogið er með Neos Air og er lent á Valencia airport (VLC).
Vegabréf
Mikilvægt er að hafa vegabréf meðferðis þegar flogið er með NEOS AIR. Flugfélagið hleypir aðeins inn farþegum sem framvísa gildu vegabréfi. Hvorki ferðaskrifstofan né flugvallarstarfsmenn geta gert undanþágu á þeim reglum.
Innritun í flug
Á flesta áfangastaði Heimsferða er nú hægt að innrita sig í sjálfsafgreiðsluborðum á Keflavíkurflugvelli. Þá prentast úr brottfararspjald og töskumiði.
Einnig er hægt að vefinnrita sig á vefsíðu NEOS AIR. Sú innritun opnar 24 klst fyrir brottför og þá fæst brottfararspjald sent á uppgefið netfang. Athugið að velja tour operator og að skrá bókunarnúmer Heimsferða án bókstafa. Passa þarf að setja nafnið eins og það er skráð í bókun (með millinafni ef við á) án íslenskra sérstafa.
Hefðbundin innritun í Keflavík hefst 2 ½ klst fyrir áætlaða brottför og innritunarborð loka 45 mín fyrir áætlaða brottför.
Á flugvöllum erlendis þarf enn að fara í hefðbundna innritun.
Allir farþegar þurfa að vera með gild vegabréf til innritunar.
Hópar eru allir bókaðir í sæti en ef að þú vilt velja þér að bóka þig í sérstakt sæti þarf að hafa samband við Heimsferðir í síma 595 1000 og þarf yfirleitt að greiða fyrir það sérstaklega. Einnig er hægt að panta mat fyrirfram fyrir flugið, í síðasta lagi 24 klst fyrir brottför.
FARANGUR:
Sjá allar upplýsingar í ferðalýsingu
AKSTUR:
Rúta ekur okkur frá flugvelli að hóteli og á heimferðardegi til flugvallar. Akstur tekur u.þ.b. 30 mínútur að hótelinu.
TÍMAMISMUNUR:
Á sumartíma frá lok mars til lok október eru þeir tveimur klukkustundum á undan.
GJALDMIÐILL
Gjaldmiðillinn á Spáni er Evra (EUR). Athugið að almennt er ekki hægt að nota annan gjaldmiðil í verslunum, en hægt er að skipta öðrum gjaldmiðlum í bönkum. Nánari upplýsingar um gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni má finna á vefsíðunni www.oanda.com. Öll helstu kreditkort er hægt að nota í verslunum og hraðbönkum í borginni, en nauðsynlegt er að vita pin- númer viðkomandi korts.
GREIÐSLUKORT:
Lang flestar búðir og veitingastaðir taka öll helstu kredit- eða debetkort. Ekki er hægt að treysta því að hægt sé að greiða fyrir vöru eða þjónustu með kortum, en að sjálfsögðu er hægt að taka pening út úr hraðbönkum, hvort sem er út á kredit- eða debetkort.
Kortinu mínu var stolið hvað geri ég?
Ef kortinu var stolið eða þú sérð ókunnugar færslur á yfirlitinu þínu, þá er mikilvægt að fara strax í appið og loka kortinu sem stolnu. Við það lokast á allar frekari færslur með kortinu.
Þú getur pantað nýtt kort í leiðinni og þú lokar stolna kortinu. Nýja kortið verður strax sýnilegt í appinu og þaðan hægt að færa í símann og byrja að nota.
Ferð í “Kort”, velur rétta kortið og þar í “punktana þrjá” og svo “Öryggi, vöktun og lokun”. Eftir það fylgirðu ferlinu.
Utan opnunartíma bankans er neyðarnúmer vegna Visakorta 525 2000.
Neyðaraðstoð SOS
SOS International sér um neyðaraðstoð fyrir kreditkorthafa Landsbankans, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Einnig má hafa má samband við Vörð tryggingar á skrifstofutíma eða neyðarþjónustu korthafa. SOS International veitir þér rétt til þrenns konar aðstoðar án aukakostnaðar.
Neyðarnúmer SOS International: +45 7010 5050 Vörður: +354 514 1000
Neyðarþjónusta vegna Visa-korta: +354 525 2000
Læknishjálp
Útvegar læknishjálp erlendis án aukakostnaðar.
Flutningar
Annast sjúkraflutninga, ferðalög vandamanna og flutning jarðneskra leifa heim.
Sjúkrakostnaður
Veitir tímabundna fyrirgreiðslu vegna sjúkrakostnaðar.
Ferðatryggingar Visakorta
Ferðatryggingar eru innifaldar í árgjöldum flestra kreditkorta en þær eru mismunandi eftir kortum. Tryggingafélagið Vörður sér um kortatryggingar Landsbankans og við hvetjum þig til að kynna þér þær tryggingar sem fylgja þínu korti á vef Varðar. Starfsfólk Varðar metur tjón og greiðir út bætur samkvæmt tryggingaskilmálum þeirra. Vörður sér einnig um aðstoð við korthafa sem þurfa að leita til neyðarþjónustu SOS. Nánari upplýsingar veitir Vörður í síma 514 1000 eða á www.vordur.is.
SÍMI, RAFMAGN, TÖLVUR
Á Spáni er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Spáni og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringja skal úr íslenskum síma í spænskt númer skal setja inn 0034- á undan númerinu. Þá er vert að taka fram að þó að hótelið sem dvalið er á, bjóði aðgang að þráðlausu wi-fi, að þá getur internetsambandið á stundum verið höktandi og ekki alltaf á það að treysta að fullu.
ÖRYGGI:
Á flestum baðströndum gilda ákveðnar öryggisreglur því ekki eru alls staðar starfsmenn á öryggisvakt. Öryggisreglur eru þannig:
• Rauður fáni: Bannað er að fara í sjóinn. Getur varðað sektum.
• Gulur fáni: Aðgát skal höfð við böð.
• Grænn fáni: Ládeyða, gott baðveður
TRYGGINGAR:
Öllum ferðalöngum er ráðlagt að fara vel yfir sínar tryggingar áður en lagt er af stað í ferðalag og kaupa sérstaka ferðatryggingu sé hún ekki þegar innifalin í korti eða heimilistryggingu viðkomandi. Einnig er gott að hafa meðferðis tryggingaskírteini frá Tryggingastofnun ríkisins, komi eitthvað óvænt upp á.
FARARSTJÓRI:
Fararstjóri er með í þessari ferð.
APÓTEK:
Apótek bera nafnið Farmacia á spænsku og eru auðþekkt á stórum grænum krossi. Yfirleitt er auðvelt að nálgast lyf í apótekum við minni háttar kvillum. Það er alltaf eitthvað apótek opið allan sólarhringinn og hægt er að fá upplýsingar hjá læknum, leigubílstjórum eða í hótelmóttöku um hvaða apótek er með næturvakt hverju sinni.
LÆKNISÞJÓNUSTA:
Ef grunur leikur á veikindum skal hiklaust leita til læknis. Sama á við ef slys verða. Á svæðinu eru læknastofur (Clínica) sem bjóða upp á læknisþjónustu allan sólarhringinn. Þar eru yfirleitt enskumælandi læknar sem geta komið í vitjun á gististaði ef þess er óskað. Einnig bendum við á að móttakan á hótelinu getur verið ykkur innan handar.
Þjónustuaðilar munu að sjálfsögðu aðstoða við læknasamskipti ef þess er óskað. Mikilvægt er að hafa vegabréf og tryggingarskjöl (bláa alþjóðlega tryggingarskírteinið frá TR E-111) meðferðis þegar læknisaðstoðar er leitað.
BANKAR:
Opnir frá kl. 09:00 til 14:00 alla virka daga. Á laugardögum er opið frá kl. 09:00 til 12:00. Hraðbankar eru víða og mælum við með að nota þá sem eru hjá bankaútibúum. Hægt er að taka út peninga í hraðbönkum, en athugið þá að hafa PIN númer kortsins við hendina. Þegar verslað er út á kredit- og debetkort í búðum er fólk stundum beðið um að sýna vegabréf til að staðfesta að þeir eigi kortið.
KRANAVATNIÐ:
Er drykkjarhæft en það bragðast ekki vel. Við mælum með að keyptar séu vatnsflöskur í matvöruverslunum til drykkjar og matargerðar.
MOSQUITOFLUGUR:
Lifa hér og því er skynsamlegt að bera á sig svokölluð anti-mosquito krem eða úða þegar rökkva tekur (slík krem/úðar er hægt að kaupa í apótekum og í flestum matvöruverslunum). Við hvetjum ykkur til að leita hiklaust til læknis ef þið fátið slæmt bit.
ÞJÓRFÉ:
Það tíðkast að gefa 5-10% þjórfé fyrir góða þjónustu, og á það sérstaklega við um veitingastaði. Rútur sem aka til og frá hóteli fráflugvelli skal gefa bílstjóra €1 að lágmarki á hvorn legg og er það aðallega fyrir að taka við ferðatöskunum og setja þær inn í rútuna. Staðarleiðsögumönnum er oftast gefið €2 – €5 eftir hvað þið eru ánægðar með hann. Rútubílstjórum í sérferðum er oftast gefið ca. €2 á mann.
BÍLALEIGUBÍLAR:
Best er að hafa samband við þjónustuaðila okkar um leigu á bílaleigubil. Rétt er að hafa í huga að væntanlegur ökumaður þarf að hafa gilt ökuskírteini og vegabréf til að geta tekið bíl á leigu. Við árekstur þarf alltaf að kalla til lögreglu og fylla út skýrslu, bæði fyrir bílaleiguna og leigutaka. Ath stafræn ökuskírteini eru ekki gild á Spáni.
LEIGUBÍLAR:
Eru þægilegasti ferðamátinn og þá er auðvelt að finna. Bílarnir eru hvítir að lit og það logar grænt ljós á þeim ef þeir eru lausir. Auðveldast er að veifa þeim út á götu eða láta gestamóttöku eða veitingastaði panta þá. Allir leigubílar eiga að vera með gjaldmæli en þó taka þeir yfirleitt fast verð fyrir ákveðnar vegalengdir.
TAX FREE
Flestar verslanir bjóða upp á svokallað Tax-free ef keypt er fyrir ákveðna upphæð í viðkomandi verslun. Verslunin fyllir þá út sérstakt eyðublað sem viðskiptavinir þurfa að fá stimplað hjá tollvörðum á flugvellinum við brottför. ATH. að þetta er gert fyrir innritun á flugvelli og hafa tollverðir leyfi til þess að óska eftir að sjá varninginn sem verslaður var. Í verslun þarf að framvísa vegabréfi þegar sótt er um Tax-free.
RÆÐISMAÐUR
Mr. Francisco Javier Miralles Torija-Gascó – Honorary Consul
Plaza Porta de la Mar 4
ES-46004 Valencia
Email: consuladoislandia@yahoo.es / jmiralles007@yahoo.es
Phone: 0034 (960) 22 42 02 Íslenskur sími: +354 777 4544.