Glæsileg ferð um Hvítasunnuna til Valencia

22. – 26. maí 2026   5 dagar 4 nætur
Fararstjóri: Ása Marin Hafsteinsdóttir

Valencia er ein af þessum dásamlegu spænsku borgum sem byggir á mikilli sögu og  hefðum. En Rómverjar byggðu borgina á sínum dag er Valencia einstök menningarborg og hjarta borgarinnar tifar af listfengi, hvort sem um ræðir tíma og gáfu henni nafnið Valentia á latínu.  Í í arkitektúr, safnalist ýmis konar eða matarmenningu. Íbúafjöldi Valencia á Spáni er yfir 840.000, sem gerir hana að þriðju stærstu borg Spánar, en á stórborgarsvæðinu í heild sinni búa um 1,6 milljónir manna.  Hún er á suðausturströnd Spánar og er þriðja stærsta borg landsins á eftir Madrid og Barcelona. Borgin markar norðurenda hinnar 200 km löngu strandlengju Costa Blanca, sem nær alla leið til Alicante í suðri. en um leið gróskumikil og spennandi – hún er staðsett í ægifögru landslagi sem einkennist af fjalllendi og fagurri ströndinni. Borgin er að stórum hluta lágreist og þétt og þar mætast gamli og nýi tíminn í arkitektúr og byggingalist. Oft er talað um að á þessu svæði finni maður anda hins gamla Spánar, hér eru spænskar hefðir og menning í öndvegi og mikil og merkileg saga blasir við manni við hvert fótmál.

Gamli bæjarhlutinn er vinalegur og heillandi, þar iðar allt af litskrúðugu mannlífi með verslanir og veitingastaði á hverju strái. Þjóðarréttur Spánverja, Paella, leit einmitt fyrst dagsins ljós í borginni yfir viðareldi. Valencia er í alla staði yndisleg borg sem býður upp á óendanlega möguleika á að njóta lífsins í dásamlegu umhverfi og einstakri veðursæld við Miðjarðarhafið.

Gaman er að rölta um og skoða litlu sjálfstæðu verslanirnar fjarri stórverslununum sem bjóða upp á allt milli himins og jarðar en einnig setur hvert verslunarhverfi upp götumarkað vikulega. Þá er Central markaðurinn í  Valencia er einnig mjög vinsæll meðal verslunarunnenda en þar er flóamarkaður,  götumarkaður og verslunarmiðstöð í fallegum byggingum. Á markaðnum finnur þú úrval af innlendum vörum, s.s. ostum, kjöti, fisk, áfengi, ávöxtum og fleira góðmeti. 
Valencia státar af miklu úrvali verslana líkt og margar stórborgir en hér má finna öll stærstu vörumerkin. Verslanir Zara og Mango eru fjölmargar enda spænsk vörumerki en hér eru einnig fjölmargar H&M verslanir auk Primark.

Í borginni miðri er Turia-garðurinn, mjög fallegur almenningsgarður sem er sannkölluð útivistarparadís með ótal möguleikum á afþreyingu. Skammt þar frá er svo „City of Art and Science“, það er þyrping nútímalegra hvítra bygginga í Avant Garde-stíl þar sem m.a. er að finna óperuhús Valencia og sædýrasafnið Oceanografic sem er eitt hið magnaðasta í heimi. 

Borg lista og vísinda samanstendur af 5 aðalbyggingum; óperuhúsinu Palau de les Arts Reina Sofia,  kvikmyndahúsinu Imax, vísindabyggingunni The Prince Felipe, viðburðabyggingunni Agora  og svo að lokum hópi bygginga í gríðarlega stórum garði sem saman mynda sædýrasafnið L´Oceanografic, eitt það besta í heiminum. 

Ekki langt frá City of Art and Science eða um 400 metra, stendur hótelið okkar Hotel Valencia Center4*þar sem við munum gista 4 nætur með morgunverði. Hótelið er staðsett í 3 km fjarlægð frá miðbæ Valencia. Herbergin eru hönnuð í klassískum stíl, öll vel útbúin með loftkælingu,  öryggishólfi, minibar og hárþurrku á baðherbergjum.  Á hótelinu er góður veitingastaður þar sem boðið fjölbreytta rétti frá Miðjarðarhafinu sem og gott morgunverðarhlaðborð. Hér er hótelbar og móttaka sem er opin allan sólarhringinn.

Borgin býður úrval veitingastaða sem bjóða upp á matargerð frá öllum heimshornum en vinsælustu staðirnir eru þeir sem bjóða upp á spænska- og Miðjarðarhafsmatargerð. Án ef er rétturinn Paella einn af vinsælustu réttunum í Valencia auk þess sem paellan er fræg um  allan heim. Það eru hins vegar til jafnmörg afbrigði af palellu eins og það eru til margir kokkar en Valencia er óvéfengjanlega heimaland palellunnar. 

Maí mánuður þykir frábær tími til að heimsækja Valencia. Heitt loftslag með meðalhámarki á ári 24°C, lágmarki 15°C og um það bil 5 rigningardögum á mánuði.

Ferðatilhögun:
Dagur 1 –  22. maí 2026  föstudagur    Ísland – Valencia Spánn Flogið til Valencia á Spáni í beinu flugi með Neos Air og er brottför frá Keflavík kl. 8:30 áætluð lending í Valencia kl. 14:20  að staðartíma. Akstur frá flugvelli að hóteli tekur tæplega ca. 30 mínútur. Gist er í 4 nætur á Hotel Valencia Center 4*  með morgunverði. Skoðaðu videó með því að smella hér.

Dagur 2 –  23. maí 2026  laugardagur    Gönguferð um Valencia
Eftir morgunverð kl. 10:00 verður lagt af stað frá hótelinu okkar í skoðunarferð um miðborg Valencia 1/2 dagur. Ferðin hefst á skoðunarferð í rútu síðan mun fararstjóri Heimsferða leiða hópinn um helstu króka og kima miðborgar Valencia. Borgin er einstök menningarborg, iðar af mannlífi, listfengi og byggir á mikilli sögu og hefðum, að ógleymdum einstökum arkitektúr gamalla og nýrri tíma. Í gamla bænum er að finna margar sögufrægar byggingar sem eru þjóðargersemar og bera arkitektúrnum í Valencia gott vitni.​

Gengið verður frá  Torre de Serranos að ráðhúsi borgarinnar. Þaðan liggur leiðin í gengum miðbæinn með stuttum stoppum við helstu kennileiti svæðisins svo sem ráðhúsið,dómkirkjuna, Micalet turinn (Torre de Miguelete), dómhúsið (Las Cortes Valencianas), hið fornfræga verslunar- og markaðstorg Plaza Redonda og Gotneska silkimarkaðinn (Lonja de la Seda). Markaðurinn sem byggður var á 15. öld er á minjaskrá UNESCO. Hin Gotneski byggingarstíll er í hávegum hafður sem var sem var einkennandi fyrir gullöld verslunar í Valencia.

Dagur 3 –  24. maí 2026  Hvítasunnudagur    Frjáls dagur – slökun
Nú er kjörið tækifæri til að njóta sín á eigin vegum, fara inn í borgina, fara í búðir eða að skoða þessu flott söfn sem eru söfn eða bara í göngutúra.

Dagur 4 –  25. maí 2026  mánudagur  Annar í HvítasunnuFrjáls dagur – Vínsmökkun og kvöldverður

Í þessari stuttu ferð er þessi dagur síðasti heili dagurinn okkar í Valencia og nú er um að gera að njóta þess að skoða borgina, fara í söfn eða búðir sem reiknað er með að verði opnar þennan dag.  Um kvöldið verðum við með vínsmökkun og sameignlega kvöldverð.

Dagur  5 – 26. maí 2026  þriðjudagur      Heimferð  Valencia – Keflavík
Nú er komið að heimferð og verður lagt af stað frá hóteli út á flugvöll kl. 15:00. Brottför frá Valencia er kl. 18:30 í beinu flugi til Íslands. Áætluð lending í Keflavík er kl. 21.05 að staðartíma.

VERÐ:
Verð á mann sem er niðurgreitt í tvíbýli TWIN er  kr. 173.900
Verð á mann sem er niðurgreitt í einbýli er kr. 224.900        

Staðfestingargjald er kr. 50.000 og er óafturkræft

Innifalið í verði er:

  • Flug, skattar, 20 kg taska og handfarangur max 8 kg. stærð 55x40x20cm.
  • Gisting í 4 nætur á Hótel Valencia Center með morgunmat
  • Hálfsdags-skoðunarferð um Valencia með leiðsögumanni
  • Vínsmökkun og sameiginlegur kvöldverður  
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis

Ekki innifalið í verði er:

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Hádegisverðir.
  • Þjórfé fyrir bílstjóra og staðarleiðsögumenn sem er almennt um €1 – €2 per legg
  • Forfalla- og ferðatryggingar

Íslensk fararstjórn á meðan á allri ferðinni stendur sem er hópnum innan handar og segir farþegum frá ýmsum fróðleik um sögu og menningu Valencia í rútu.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Athugið sérstaklega:
Í ferðum á vegum Húsmæðraorlofsins þurfa konur að vera færar um að geta komist leiðar sinnar óstuddar, því alltaf þarf að ganga eitthvað í skoðunarferðum en gönguleiðir eru oftast ekki mikið á fótinn né mjög langar.

Hagnýtar upplýsingar fyrir Valencia.

Mikilvægar upplýsingar:  

  • Munið eftir gildum vegabréfum í utanlandsferðum.  
  • Forfallatrygging er ekki innifalin í staðfestingargjaldi.  
  • Ferða- og forfallatryggingar eru á eigin ábyrgð. 
  • Skatta- og gengisbreytingar gætu breytt auglýstu verði. 
  • Orlofsnefnd húsmæðra ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum á
    ferðaáætlun vegna ófyrirsjáanlegra  aðstæðna
    .
    Vísað er í almenna ferðskilmála á heimasíðu ferðaskrifstofunnar. 
  • Hafið ætíð evrópskt sjúkratryggingakort „E-111“ frá Sjúkratryggingum
    Íslands  meðferðis í utanlandsferðir.  Smellið hér til að sækja um kortið.
  • Konur sem búa í öðru sveitarfélagi geta farið í ferðir, en verða  sjálfar að sækja
    um niðurgreiðslu til orlofsnefndar í sínu umdæmi.  
  • Staðfestingargjald vegna ferða þarf að greiða innan viku eftir að þátttaka hefur verið samþykkt. Verði gjaldið ekki greitt innan þess tíma fellur pöntunin niður. Gengið skal frá fullnaðargreiðslu ferðar á viðkomandi ferðaskrifstofu innan 8 vikna fyrir brottför, nema annað sé tekið fram

Vinsamlegast boðið forföll eins skjótt og auðið er.
Endurgreiðslur eru skv. almennum ferðaskilmálum á heimsíðu Heimsferða

Varðandi aðra skilmála vísast í “almenna ferðaskilmála” á heimasíðu Heimsferða  Ferðaskilmálar