Skemmtileg haustferð til Edinborgar

30. október  – 3. nóvember 2026   5 dagar / 4 nætur
Íslenskur fararstjóri

Við bjóðum upp á spennandi ferð í haust til Edinborgar í Skotlandi.  Edinborg er höfuðborg Skotlands og önnur stærsta borgin á eftir Glasgow. Þar búa í kringum 564.000 manns, en um það bil 900.000 í héraðinu öllu. Borgin heitir sameinar hið gamla og nýja á sérstæðan hátt og þar upplifir maður skoska andrúmsloftið.  Á hæð fyrir ofan borgina gnæfir hinn tignarlegi Edinborgarkastali og er hann táknmynd borgarinnar. Kastalinn er sannarlega meira en bara kastali þar sem hann gnæfir yfír miðborginni og þegar upp er komið kemur á óvart hversu víðfeðmur hann er þarna efst á klettinum.  Sagan bergmálar í gamla borgarhlutanum og það er eins og Jakobar og Maríur séu á hverju horni. Edinborg býður upp á blöndu af gamla og nýja tímanum enda liggja þar saman hlið við hlið miðaldabyggingar, kirkjur í gotneskum stíl og hús byggð skv. nútíma arkitektúr.

Frá Edinborgarkastala liggur hin sögufræga leið, Konungsmílan, (Royal Mile), að Holyrood-höll, sem áður fyrr var bústaður Skotakonunga. Princes Street er í hjarta borgarinnar. Á aðra hönd götunnar er fallegur garður með blómaklukkunni frægu sem hlaðin er 29 þúsund blómum að vori og standa þau venjulega í blóma út októbermánuð. Þarna niðri, þar sem áður var á, er járnbrautarstöðin og sem betur fer verður maður ótrúlega lítið var við hana þarna í hjarta borgarinnar.

Edinborgarháskóli hefur lengi verið meðal þeirra fræðasetra erlendis sem íslenskir

námsmenn hafa mest sótt til; hinn merkasti skóli allar götur frá árinu 1583.
Þegar Gullfoss var og hét var hafnarborgin Leith viðkomustaður skipsins.

Edinborg er stundum kölluð kráarborgin og Þrátt fyrir feita verðbólgu er skitið bjórglas enn á hálfvirði í Bretlandi að meðaltali miðað við algengt verð á klakanum í norðri. Gott betur reyndar því sökum þess að þessir deyjandi heimsveldis sinnar, sem hafa alltaf viljað hafa allt spes og eftir sínu höfði eins og vinstri umferð, gátu ekki einu sinni haft bjórglasið „pint” hálfan lítra. Neibbs, þetta lið sem eitt sinn taldi það góða hugmynd að ráðast á litla, fátæka Ísland út af þorski, vill hafa nákvæmlega 560 ml. í sínum fræga „pint.” Sem auðvitað merkir að bjórinn er meira en helmingi ódýrari í Bretlandi að meðaltali en á farsæla Fróni.

Flogið verður með Icelandair til Edinborgar og síðan ekið að hótelinu okkar sem er á besta stað í miðborginni. 

Á öðrum degi verður farið í gönguferð um eldri hluta Edinborgar og tekur það í ca. 2,5 tíma sem Skotganga sér um

Á þriðja deginum verður farið í Sveitaferð með Skotgöngu og verður ekið til Loch Lomond sem er rómaðasta vatn Skotlands í lítinn bæ sem heitir Luss þar sem við munum rölta um fallegan bæinn og niður að vatninu. Eftir það er ekið um hið fallega Trossachs hérað en það er fyrsti þjóðgarðurinn í Skotlandi Þar munum við stoppa í bænum Callander þar sem konurnar fá frjálsan tíma að rölta um og eftir það er ekið til Stirling í Afternoon Tea á the  Stirling Highland Hotel.

Á síðasta deginum okkar í Edinborg sem verður frjáls dagur en boðið upp á sameiginlega kvöldverð á góðum stað ekki langt frá hótelinu.

Rétt er að benda ferðafólki á að af flestum vörutegundum nema barnafötum er hægt að fá virðisaukaskatt endurgreiddan.

Ferðatilhögun:

Dagur 1 –  30. október 2026  föstudagur    Ísland – Edinborg

Flogið til Edinborgar með Icelandair og er brottför frá Keflavík kl. 8:00 áætluð lending í Edinborg kl. 10:20  að staðartíma. Akstur frá flugvelli að hóteli tekur tæplega ca. 30 mínútur.  Gist er í 4 nætur á ibis Styles Edinburgh St Andrew Square  með morgunverði. Þetta er stílhreint hótel þar sem nútímalegur sjarma og þægindi mætast.Herbergin eru björt og notaleg, með fríu Wi‑Fi, sjónvarpi og te-/kaffiaðstöðu. Á hótelinu er boðið upp á morgunverðarhlaðborð, auk bars og veitingaaðstöðu þar sem gestir geta notið léttra máltíða eða drykkja.  Hér má sjá video af hótelinu með því að smella á hér

Hótelið er í nokkrar mínútna göngu frá Princes Street, Royal Mile og söfnum borgarinnar, mjög góð staðsetning hvort sem þú vilt skoða söguna, versla eða njóta menningarinnar. Í næsta nágrenni er einnig fjölbreytt úrval kaffihúsa, pöbba og veitingastaða. Nú er tilvalið að nýta daginn í að skoða sig um og fara í verslanir.

Dagur 2 –  31. október 2026  laugardagur – gönguferð um Edinborg með Skotgöngu
Eftir morgunverð kl. 9:30 ca. verður lagt af stað frá hótelinu okkar í gönguferð yfir í gamla bæinn þar sem við röltum niður Royal Mile niður að Holyrood höllinni og þar munum við setjast inn í drykk. Göngum svo upp að Edinborgarkastala og á leiðinni fræðumst við um það, sem á vegi okkar verður. Göngunni líkur upp við kastalann og eftir það frjáls tími.

Dagur 3 –  1. nóvember 2026   Sunnudagur Dagsferð um hálöndin með Afternoon Tea
Eftir morgunverð eða kl. 9:00 verður ekið til Loch Lomond sem er rómaðasta vatn Skotlands í lítinn bæ sem heitir Luss þar sem við munum rölta um fallegan bæinn og niður að vatninu. Eftir það er Eftir það er ekið um hið fallega Trossachs  hérað en það er fyrsti þjóðgarðurinn í Skotlandi í Skotlandi. Þar munum við stoppa í bænum Callander þar sem konur fá frjálsan tíma að rölta um og eftir það er ekið til Stirling í Afternoon Tea á the Stirling Highland Hotel.  Sjá map hér.  Komið til baka um kl. 17.

Dagur 4  1. nóvember 2026  mánudagur Frjáls dagur – sameiginlegur kvöldverður
Frjáls dagur og tilvalin til að skoða söfn og njóta dagsins. Um kvöl dið verður sameiginlegur kvöldverður.  Nánar síðar

Dagur 5 –  3. nóvember 2026  þriðjudagur     Heimferð  Edinborg – Keflavík
Nú er komið að heimferð og verður lagt af stað frá hóteli út á flugvöll kl. 8:30. Brottför frá Edinborg er kl. 11:20 í beinu flugi til Íslands. Áætluð lending í Keflavík er kl. 13.55 að staðartíma.

VERÐ:
Verð á mann sem er niðurgreitt í tvíbýli er  kr. 186.000
Verð á mann sem er niðurgreitt í einbýli er kr. 265.000
   
Staðfestingargjald er kr. 50.000 og er óafturkræft

Innifalið í verði er:

  • Flug, skattar, 23 kg taska og handfarangur 10 kg.
  • Gisting í 4 nætur á ibis Styles Edinburgh St Andrew Square með morgunmat
  • Gönguferð um Edinborg með Skotgöngu
  • Dagsferð um hálöndin með Afternoon Tea með Skotgöngu
  • 1 sameiginlegur kvöldverður
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis

Ekki innifalið í verði er:

  • ETA leyfi til að ferðast til Bretlands kostar £16. Með. linkur er hér og video hvernig þú sækir um. Smelltu hér
  • Hádegisverðir
  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Þjórfé fyrir bílstjóra og staðarleiðsögumenn sem er almennt um  £1 –  £2 per legg
  • Forfalla- og ferðatryggingar

Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Athugið sérstaklega:
Í ferðum á vegum Húsmæðraorlofsins þurfa konur að vera færar um að geta komist leiðar sinnar óstuddar, því alltaf þarf að ganga eitthvað í skoðunarferðum en gönguleiðir eru oftast ekki mikið á fótinn né mjög langar.

Áhugverðir staðir í Edinborg
Það er fjöldi áhugaverðra staða sem vert er að skoða þegar komið ertil Edinborgar.
Hér nefnum við nokkra:
Edinburgh Castle –  tilkomumikill kastali sem gnæfir yfir borgina. Kastalinn er um leið kennileiti borgarinnar. Þaðan er frábært útsýni yfir borgina. Ótrúleg saga og listir. Kastalinn er enn í noktun, en þar er mikið að sjá og skoða.
National Museum of Scotland – Glæsilegt safn sem var opnað 1998. Saga Skotlands í máli og myndum.
Witchery Tours –  Draugaganga, gengið um þröngar götur gamla miðbæjarins í Edinborg. Hlýðum á draugasögur á leiðinni.
The Scottish Wisky Museum –  þar sem kennt er á mjög lifandi og skemmtilegan hátt hvernig viský verður til. Í lokin er öllum boðið staup af viskýi.
Dómkirkjan St Giles Cathedral – Blasir við rétt neðan við gatnamót Royal Mile og Bank Street á Royal Mile. Er þess virði að skoða og sjá sökum aldurs og sögu en ekki síst fyrir það að einn glugginn er gerður af meistarhöndum Leifs Breiðfjörðs sem stundaði listanám í Edinborg á sínum tíma.
National Gallery of Modern Art 
–  tækifæri fyrir alla listunnendur. Hér má sjá verk listamanna samtímans.
Children´s Museum – Safn neðarlega á The Royal Mile. Enginn aðgangseyrir í safnið. Heimsókn sem kemur við alla sem eitt sinn hafa verið börn. Safnið sérhæfir sig í mismunandi tímabilum leikfanga, skóla, söngva og leikja barna frá ýmsum tímabilum.

Mikilvægar upplýsingar:  

  • Munið eftir gildum vegabréfum í utanlandsferðum.
  • Munað að sækja um ETA leyfið annars komist þið ekki með  
  • Forfallatrygging er ekki innifalin í staðfestingargjaldi.  
  • Ferða- og forfallatryggingar eru á eigin ábyrgð. 
  • Skatta- og gengisbreytingar gætu breytt auglýstu verði. 
  • Orlofsnefnd húsmæðra ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum á
    ferðaáætlun vegna ófyrirsjáanlegra  aðstæðna
    .
    Vísað er í almenna ferðskilmála á heimasíðu ferðaskrifstofunnar. 
  • Hafið ætíð evrópskt sjúkratryggingakort „E-111“ frá Sjúkratryggingum
    Íslands  meðferðis í utanlandsferðir.  Smellið hér til að sækja um kortið.
  • Konur sem búa í öðru sveitarfélagi geta farið í ferðir, en verða  sjálfar að sækja
    um niðurgreiðslu til orlofsnefndar í sínu umdæmi.  
  • Staðfestingargjald vegna ferða þarf að greiða innan viku eftir að þátttaka hefur verið samþykkt. Verði gjaldið ekki greitt innan þess tíma fellur pöntunin niður. Gengið skal frá fullnaðargreiðslu ferðar á viðkomandi ferðaskrifstofu innan 8 vikna fyrir brottför, nema annað sé tekið fram

Vinsamlegast boðið forföll eins skjótt og auðið er. Endurgreiðslur eru skv.
almennum ferðaskilmálum á heimsíðu Heimsferða

Varðandi aðra skilmála vísast í “almenna ferðaskilmála” á heimasíðu Heimsferða  Ferðaskilmálar