
Fararstjóri okkar í þessari ferð er Ása Marin Hafsteinsdóttir. Hún hefur unnið við fararstjórn hálfa ævina og á reyndar Andalúsía sérstakan stað í hjarta hennar. Fyrir Heimsferðir hefur hún tekið að sér fararstjórn í strandbæjum Spánar, í borgarferðum á Spáni og Portúgal, á eyjum í Karíbahafi og ýmsum sérferðum. Ása Marin var fararstjórinn okkar til Portúgals 2023 og nú fer hún með okkur til Valencia 2026.
Ása Marin er einnig rithöfundur og er nýjasta bókin hennar heitir “Stjörnur yfir Eyjafirði”. Hún hefur einnig skrifað skálduðu ferðasögurnar Yfir hálfan hnöttinn sem gerist í Víetnam og Vegur vindsins, buen camino sem fjallar um pílagrímagöngu á Jakobsveginum. Hún er menntaður grunnskólakennari og hefur auk skapandi skrifa skrifað námsefni í íslensku fyrir Menntamálastofnun.