Ágústa Sigrún Ágústsdóttir
Ágústa hefur mannauðsstjórnun og markþjálfun að aðalstarfi en ræturnar hennar eru í ferðmennsku og fararstjórn sem hún sinnir jafnhliða öðrum störfum.
Ágústa er menntaður leiðsögumaður frá Leiðsöguskóla Íslands og hefur um árabil unnið við fararstjórn á Ítalíu, Króatíu og Slóveníu sem og við að leiðsegja ítölsku- og enskumælandi ferðamönnum um Ísland. Hún er einnig með bakgrunn úr listgreinum, er menntuð söngkona og söngkennari og hefur tekið þátt í sviðsuppfærslum og gefið út geisladiska.
Ágústa talar bæði ensku og ítölsku og heldur úti ferðabloggi þar sem hún varpar upp áhugaverðum vinklum um ýmislegt tengt ferðalögum: www.flandrr.is