
Fararstjóri okkar í þessari ferð er Ása Marin Hafsteinsdóttir. Hún hefur unnið við fararstjórn hálfa ævina og á reyndar Andalúsía sérstakan stað í hjarta hennar. Fyrir Heimsferðir hefur hún tekið að sér fararstjórn í strandbæjum Spánar, í borgarferðum á Spáni og Portúgal, á eyjum í Karíbahafi og ýmsum sérferðum. Ása Marin var fararstjórinn okkar í Portúgalsferðinni 2023
Ása Marin er einnig rithöfundur og er nýjasta bókin hennar Stjörnur yfir Eyjafirði”. Hún hefur einnig skrifað skálduðu ferðasögurnar Yfir hálfan hnöttinn sem gerist í Víetnam og Vegur vindsins, buen camino sem fjallar um pílagrímagöngu á Jakobsveginum. Hún er menntaður grunnskólakennari og hefur auk skapandi skrifa skrifað námsefni í íslensku fyrir Menntamálastofnun.