Glæsileg hvíldar- og skemmtiferð til Calabria á Ítalíu – mikið innifalið

21.  – 29. september 2026    9 dagar / 8 nætur
Fararstjóri: Ágústa Sigrún Ágústsdóttir

Calabria myndar “tána” (og ristina) á ítalska stígvélinu. Í suðri skilur einungis lítið sund héraðið frá Sikiley. Sundið heitir Messina sund. Héraðið er rúmir 15.000 ferkílómetrar að stærð og íbúarnir eru u.þ.b. 2 milljónir. Héraðið er 248 kílómetrar að lengd frá norðri til suðurs en einungis 110 kílómetrar þar sem það er breiðast frá austri til vesturs en þess má geta að strandlengja héraðsins er u.þ.b. 710 kílómetrar að lengd. Héraðið skiptist í fimm sýslur: Cosenza, Crotone, Catanzaro, Vibo Valentia og Reggio di Calabria.

Höfuðborg héraðsins er Catanzaro í samnefndri sýslu og aðrar borgir eru Reggio di Calabria, Lamezia Terme, Cosenza og Crotone. Calabria er þekkt fyrir öll fallegu þorpin, hvítar strendur, tæran sjó og fjörugt næturlíf. Annars er héraðið fjalllent og skógi vaxið með sína fallegu þjóðgarða með fjölbreyttum gróðri og miklu dýralífi, t.d. Pollino, Sila og Aspromonte. Pollinofjöllin í norðurhluta héraðsins eru harðgerð og mynda náttúrulegan varnargarð sem aðgreinir Calabria frá restinni af Ítalíu.

Héraðið er að mestu ósnortið af fjölda túrisma enn sem komið er. Þeir sem til þekkja segja þó að svæðið ætti að vera einn heitasti staðurinn enda fallegar strendur og einstök náttúra til staðar.

TUI Magic Life er mjög gott hótel í Calabria þar sem boðið er upp á “allt innifalið”.  Hótelið stendur eitt og sér alveg við ströndina með fallegum garði og beinu aðgengi að sandströnd með frábærri sólbaðsaðstöðu.  Þá er sundlaugargarðurinn stór og rúmgóður með 5 sundlaugum.  

Alls eru 4 veitingastaðir á hótelinu.  Aðal veitingastaðurinn “Magico” þar sem snætt er af hlaðborði, “Trottoria” sem býður uppá mat úr héraði, “The Flavor” sem er með alþjóðlegan matseðil og síðan  “Fish & grill” sem sérhæfir sig í sjávarréttum.  Þá eru 4 barir, þar af einn sem opinn er allan sólarhringinn.  Gestir hótelsins geta snætt einu sinni á meðan á dvöl stendur á öðrum stað en á aðalveitingastað hótelsins án endurgjalds.  Panta þarf borð í gestamóttöku með fyrirvara.  Hægt er að snæða oftar en einu sinni gegn vægu gjaldi.

Allt innifalið á TUI Magic Life inniheldur morgunverð, hádegisverð og kvöldverð, snarl á milli mála, ís, kaffi, kökur og annað bakkelsi.  Þá eru drykkir innifaldir allan sólarhringinn, gos, vatn, kaffi, te ásamt innlendum bjór og innlendu léttvíni.  Hægt er að versla alþjóðlega drykki á sérstökum bar sem staðsettur er nálægt sundlauginni.

Herbergin eru rúmgóð og vel búin helstu þægindum.  Öll með góðu baðherbergi, sjónvarpi, wi-fi tengingu, hárþurrku, og litlum ísskáp.  Svalir eða verönd á öllum herbergjum.  Öll herbergi eru loftkæld.  Hægt er að fá herbergi á sér svæði sem kallast “Private Lodge” en um er að ræða tvær byggingar sem eru með eigin sundlaug og veitingastað sem eingöngu er ætlað gestum sem bóka þau.  Þessi herbergi eru aðeins fyrir 16 ára og eldri. Gestir sem bóka sig í “Privat Lodge” hafa einnig aðgang að öllum svæðum hótelsins. 

Fjölbreytt skemmtidagskrá er á hótelinu bæði yfir daginn svo og á kvöldin.  Hægt er að taka þátt í leikfimi, vatnaíþróttum, tennis, hjólreiðum, blaki  eða fótbolta. Þá er einnig skemmtidagskrá sérsniðin að börnum.  Aðgangur að heilsurækt kostar aukalega.

Í 10-12 mínútna akstursfjarlægð frá hótelinu er bærinn Pizzo.  Hótelið býður upp á skutlu til og frá bænum nokkrum sinnum á dag gegn 10 eur gjaldi (báðar leiðir).  Bærinn er sjarmerandi með þröngar götur, verslanir, kaffi- og veitingahús.  Ekta ítalskur bær með mikinn sjarma.  Einnig er hægt að taka leigubíl á milli hótelsins og bæjarins. Einnig verður í boði leiga á bílaleigubílum á meðan á dvöl stendur. Bílaleigan kemur þá með bílinn á hótelið kvöldið áður en leigan tekur gildi.  Bílaleigan sækir svo bílinn aftur á hótelið. 

Ferðatilhögun:
Dagur 1 –  21. september 2026  mánudagur    Ísland – Calabria á Ítalíu
Flogið til Lamezia Terme (SUF) á suður Ítalíu í beinu flugi með Neos Air og er brottför frá Keflavík kl. 8:00 áætluð lending í Lamezia Terme kl. 15:05  að staðartíma. Akstur frá flugvelli að hótelinu okkar TUI Magic Life tekur tæplega ca. 30 mínútur. Gist er í 7 nætur á með öllu innifalið. Þá er hægt að skoða video af svæðinu með því að smella á hér.

Dagur 2 –  22. september 2026  þriðjudagur    Frjáls dagur – slökun
Nú er kjörið tækifæri til að njóta sín á eigin vegum, fara auðvitað í sólbað og í sjóinn, skoða allt sem hótelið hefur upp á að bjóða eða fara bara í göngutúra.

Dagur 323. september 2026  miðvikudagur   Skoðunarferð um Pizzo & Tartufo-ís

Eftir morgunverð kl. 10:00 verður lagt af stað frá hótelinu okkar í skoðunarferð um Pizzo. Rölt um hinn fallega strandbæ Pizzo, heimsókn í Murat-kastalann og smökkun á hinum fræga Tartufo-ís. Notaleg og sæt upplifun í heillandi umhverfi. Tartufo di Pizzo er ísbomba úr súkkulaði- og heslihnetuís, stráð kakói og fyllt með bræddu súkkulaði.

Dagur  4 – 24. september 2026  fimmtudagur  – Frjáls dagur
Nú er um að gera að slaka á eða nota daginn í t.d. ferð á vegum Heimsferða sem þarf að bóka sérstaklega.  Smelltu á hér en þar er linkur til að skoða ferðirnar

Dagur 5 – 25. september 2026 föstudagur Tropea – „Dolce Vita“ upplifun

Heilsdagsferð með leiðsögn um gamla bæinn í Tropea, með þröngum strætum, fallegum útsýnisstöðum og smökkun á staðbundnum kræsingum. Hér færðu að upplifa hina sönnu ítölsku lífslist.

Dagur  6 – 26. september 2026  laugardagur  – Frjáls dagur
Nú er um að gera að slaka á eða nota daginn í t.d. ferð á vegum Heimsferða sem þarf að bóka sérstaklega.  Smelltu á hér en þar er linkur til að skoða ferðirnar.

Dagur  7 – 27. september 2026  sunnudagur –  Frjáls dagur
Sameinginlegur kvöldverður á hótelinu
Nú er um að gera að slaka á eða nota daginn í t.d. ferð á vegum Heimsferða sem þarf að bóka sérstaklega.  Smelltu á hér en þar er linkur til að skoða ferðirnar.

Dagur  8 – 28. september 2026  mánudagur     framlenging á ferð
Nánar fljótlega

Dagur  9 – 29. september 2026  þriðjudagur     Heimferð Lamezia Terme – Keflavík
Nú er komið að heimferð og er úttékk kl. 12:00.  Lagt verður af stað frá hóteli út á flugvöll kl. 14:30. Brottför frá Lamezia Terme (SUF) er kl. 17:30 í beinu flugi til Íslands. Áætluð lending í Keflavík er kl. 20.30 að staðartíma.

VERÐ:
Verð á mann sem er niðurgreitt í tvíbýli TWIN í Privat Lodge allt innifalið er  kr. 250.800
Verð á mann sem er niðurgreitt í einbýli í Privat Lodge allt innifalið er kr. 320.800

Privat Lodge er fyrir 16 ára og eldri og er með sér sundlaug og sér matsal sjá video hér

Ferðamannaskattur er greiddur beint til gististaðar og er hann €3,50 per. nótt sem gerir €24,5 fyrir 7 nætur.  Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt hann.
Staðfestingargjald er kr. 50.000 og er óafturkræft

Ekki innifalið: Valfrjálsar kynnisferðir

  • Vindeyjar. Sigling og eldvirkni
  • Stromboli að næturlagi (heill dagur)
  • Reggio og Scilla. Bronsstyttur, verslanir og sverðfiskur
  • Kvöldstund með tónlist og mat frá Kalabríu
  • Taormina á Sikiley
  • Vínfræðsluferð og smökkun

Innifalið í verði er:

  • Flug, skattar, 20 kg taska og handfarangur max 8 kg.
    stærð 55x40x20cm.
  • Gisting í 8 nætur á TUI Magic Life 4* Privat Lodge með öllu innifalið
  • Hálfsdags-skoðunarferð til Pizzo Calabro
  • Heilsdags-skoðunarferð til Tropea og hin sæta og kryddaða Calabria  
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis
  • Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið í verði er:

  • Aðgangseyrir inn í söfn, hallir og kirkjur.
  • Þjórfé fyrir bílstjóra og staðarleiðsögumenn sem er almennt um €1 – €2 per legg
  • Forfalla- og ferðatryggingar

Íslensk fararstjórn á meðan á allri ferðinni stendur sem er hópnum innan handar og segir farþegum frá ýmsum fróðleik um sögu og menningu Valencia í rútu.
Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn.

Athugið sérstaklega:
Í ferðum á vegum Húsmæðraorlofsins þurfa konur að vera færar um að geta komist leiðar sinnar óstuddar, því alltaf þarf að ganga eitthvað í skoðunarferðum en gönguleiðir eru oftast ekki mikið á fótinn né mjög langar.


Hagnýtar upplýsingar fyrir Calabria.

Mikilvægar upplýsingar:  

  • Munið eftir gildum vegabréfum í utanlandsferðum.  
  • Forfallatrygging er ekki innifalin í staðfestingargjaldi. 
  • Ferða- og forfallatryggingar eru á eigin ábyrgð. 
  • Skatta- og gengisbreytingar gætu breytt auglýstu verði. 
  • Orlofsnefnd húsmæðra ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum á ferðaáætlun vegna ófyrirsjáanlegra  aðstæðna. Vísað er í almenna ferðskilmála á heimasíðu ferðaskrifstofunnar. 
  • Hafið ætíð evrópskt sjúkratryggingakort „E-111“ frá Sjúkratryggingum Íslands  meðferðis í utanlandsferðir.  Smellið hér til að sækja um kortið.
  • Konur sem búa í öðru sveitarfélagi geta farið í ferðir, en verða  sjálfar að sækjaum niðurgreiðslu til orlofsnefndar í sínu umdæmi.  
  • Staðfestingargjald vegna ferða þarf að greiða innan viku eftir að þátttaka hefur verið samþykkt. Verði gjaldið ekki greitt innan þess tíma fellur pöntunin niður.
  • Gengið skal frá fullnaðargreiðslu ferðar á viðkomandi ferðaskrifstofu innan 8 vikna fyrir brottför, nema annað sé tekið fram

Endurgreiðslur er  skv.almennum ferðaskilmálum á heimsíðu Heimsferða
Varðandi aðra skilmála vísast í “almenna ferðaskilmála” á heimasíðu Heimsferða  Ferðaskilmálar