Helgarferð um Suðurströnd Íslands að Jökulsárlóni

29. – 30. ágúst 2026   2 dagar / 1 nótt
Íslenskur fararstjóri
Að ferðast um Suðurströnd Íslands er ferð um eitt af stórkostlegasta og fjölbreyttasta landslag landsins og er einn af vinsælustu áfangastöðum Íslands. Frá turnháum fossum og svörtum sandströndum til jökullóna og eldfjalla býður þessi ferð upp á ógleymanlega innsýn í frumkraft Íslands. Seljalandsfoss og Skógafoss eru þekktir fossar á þessu svæði – hægt er að ganga bak við Seljalandsfoss til gamans og Skógafoss hefur birst í kvikmyndum á borð við The Secret Life of Walter Mitty og Thor: The Dark World. Það er hægt að sökkva sér niður í hráa fegurð, þjóðsögur og jarðfræðileg undur. Hvort sem þú ert að horfa á lunda fljúga yfir sjávarbjörg eða ganga á bak við fossa, þá sýnir þessi leið Ísland í sinni kvikmyndalegu og hjartnæmustu mynd.

Reynisdrangar, eru klettadrangar myndaðir í eldsumbrotum og allt að 66m háir. Töluvert fuglavarp er í

dröngunum, bæði fýll, lundi og langvía eiga sér þar hreiður. Þeir eru staðsettir í sjónum sunnan við Reynisfjall í Mýrdal og gefa umhverfinu ögrandi sýn mót svartri fjörunni sem nefnd er Reynisfjara. Hún er ein frægasta strönd Íslands enda sandurinn svartur og fallegt er að sjá þegar brimið leikur við fjöruborðið. Reynisfjara er reyndar ein hættulegasta fjara landsins svo ekki má fara of nálægt þeim dansi.

Kirkjubæjarklaustur á Síðu hét áður Kirkjubær og var þar löngum stórbýlt og má segja að svo sé enn. Kauptún hefur myndast þar og nefnt í daglegu tali „Klaustur”. Nunnuklaustur af Benediktsreglu var stofnað í Kirkjubæ árið 1186 og hélst klausturhald óslitið fram að siðaskiptum 1550. Fjöldi örnefna á Klaustri og Skaftárhreppi tengjast klausturhaldinu. Systra Stapi, rétt vestur af Klaustri, er klettastapi þar sem talinn er vera legstaður tveggja nunna, sem voru brenndar á báli fyrir ýmsar syndir. Svæðið telst til merkustu sögustaða landsins og segja má að Klaustur og nágrenni geymi margar mestu náttúruperlur Íslands.  Þarna munum við gista 1 nótt á Hótel Klaustri 4* hóteli með morgunmat og 3ja rétta kvöldverði.

Jökulsárlón er ein helsta náttúruperla landsins, stórt jökullón við rætur Breiðamerkurjökuls í suðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Lónið er friðlýst sem hluti af Vatnajökulsþjóðgarði og dýpsta vatn landsins, tæpir 300m. Fjaðrárgljúfur er stórbrotið og hrikalegt, um 100 metra djúpt og um tveir kílómetrar að lengd. Gljúfrið er veggbratt, örlítið hlykkjótt og þröngt. Berggrunnurinn í Fjaðrárgljúfri er að mestu móberg frá kuldaskeiðum ísaldar og telst um tveggja milljóna ára gamalt

Fjaðrárgljúfur er stórbrotið og hrikalegt, um 100 metra djúpt og um tveir kílómetrar að lengd. Gljúfrið er veggbratt, örlítið hlykkjótt og þröngt. Berggrunnurinn í Fjaðrárgljúfri er að mestu móberg frá kuldaskeiðum ísaldar og telst um tveggja milljóna ára gamalt.

Fjaðrárgljúfur er á náttúruminjaskrá og varð fyrst frægt þegar Justin Bieber lét taka upp fyrir nokkrum árum myndband þar sjá hér


Ferðatilhögun:
Dagur 1 –  29. ágúst 2026  laugardagur    Höfuðborgarsvæði – Seljalandsfoss – Skógarfoss – Kirkjubæjarklaustur
Ekið frá Garðatorgi og stoppað við Orkuna á Miklubraut og síðan á N1 bensínstöðinni í Norðlingaholti til að pikka upp orlofskonur.  Síðan er ekið að Seljalandsfossi með stuttu stoppi á Hvolsvelli til að virða fyrir okkur salernin. Þá er ekið að Skógafossi þar sem við snæðum léttan hádegisverð.  Eftir það er ekið að Reynisfjöru og síðan á hótelið okkar á  Kirkjubæjarklaustri Hótel Klaustur 4* þar sem við gistum eina nótt með morgunmat og 3ja rétta kvöldverði.

Dagur 2 –  30. ágúst 2026  sunnudagur    Kirkjubæjarklaustur – Jökulsárlón – FjaðrárgljúfurHöfuðborgin
Eftir morgunverð kl. 9:00 verður lagt af stað frá hótelinu okkar og ekið að Jökulsárlóni þar sem stoppað verður í tæpa 2 tíma.  Ekið verður síðan að Fjaðrárgljúfriþar sem við skoðum þetta heimsfræga gil. Síðan verður ekið í bæinn og stoppað á einum til tveimur  stöðum á leiðinni. Þegar á höfuðborgarsvæðið er komið verður stoppað á þeim stöðum sem konur komu inn í bílinn.

VERÐ:
Verð á mann sem er niðurgreitt í tvíbýli er  kr. 58.000
Verð á mann sem er niðurgreitt í einbýli er kr. 79.000
Verð er miðað við lágmark 20 farþega

Staðfestingargjald er kr. 25.000 innan 7 daga frá bókun og er óafturkræft
Lokagreiðsla er 15. Júní 2026

Innifalið í verði er:

  • Akstur alla ferðina
  • Gisting í 1 nótt á Hótel Klaustri, Kirkjubæjarklaustri með morgunmat
  • 1 léttur hádegisverðir (dagur 1)
  • 3ja rétta kvöldmáltíð
  • Íslensk leiðsögn og fararstjórn

    Ekki innifalið í verði er:
  • Allt annað sem ekki er tekið fram í ferðalýsingu
  • Aðgangseyrir inn í söfn

Íslensk fararstjórn er í þessari ferð og verður hópnum innan handar og segir farþegum frá ýmsum fróðleik um sögu svæðanna. Fararstjóri getur fært dagskrárliði á milli daga eftir þörfum þegar komið er á staðinn

Athugið sérstaklega:
Í ferðum á vegum Húsmæðraorlofsins þurfa konur að vera færar um að geta komist leiðar sinnar óstuddar, því alltaf þarf að ganga eitthvað í skoðunarferðum en gönguleiðir eru oftast ekki mikið á fótinn né mjög langar.

Mikilvægar upplýsingar: 

  • Forfallatrygging er ekki innifalin í staðfestingargjaldi.  
  • Ferða- og forfallatryggingar eru á eigin ábyrgð. 
  • Orlofsnefnd húsmæðra ber ekki ábyrgð á töfum eða breytingum á
    ferðaáætlun vegna ófyrirsjáanlegra  aðstæðna
    .
  • Konur sem búa í öðru sveitarfélagi geta farið í ferðir, en verða  sjálfar að sækja
    um niðurgreiðslu til orlofsnefndar í sínu umdæmi. 

BÓKAÐU ÞIG HÉR FYRIR NEÐAN

umsoknir 2026 innan með hoteli
Veldu einbýli eða tvíbýli
Hefur þú áður farið í húsmæðraorlofs ferð?