Ferð: Reggio Calabria og Scilla. Bronsstyttur, verslanir og sverðfiskur (heill dagur)
Dagsetning: 23.09.2026 Miðvikudagur
Tími: Brottför um kl. 08:00 frá Tui Magic hótelinu. Reiknað með heimkomu um kl. 18:00.
Við förum til borgarinnar Reggio Calabria í morgunsárið sem er borg í Kalabría. Aksturinn ætti að taka um 1,5 tíma. Frá Reggio er frábært útsýni yfir Messínasundið í átt að Sikiley og óhætt að mæla með göngutúr meðfram stórbrotinni strandgötunni eða að kíkja í einhverja af hinum fjölmörgu verslunum á aðalgötunni. Þar gefst tækifæri til að kíkja í búðir en einnig er hægt að kíkja á hið merkilega safn sem geymir brons-stytturnar frægu í frjálsa tímanum. Nánari upplýsingar um stytturnar má finna hér
Seinni viðkomustaður dagsins er Scilla sem er heillandi fiskimannaþorp. Þar fáum við að sverðfisk eins og hann gerist bestur í hádegisverð og annað góðgæti. Eftir málsverðinn göngum við í gegnum fiskimannahverfið Chianalea og njótum þess sem bærinn hefur upp á að bjóða. Sjá video með því að smella á hér
Verð: 13.900 kr
Innifalið í verði: Akstur, hádegisverður í Scilla og drykkir, íslensku leiðsögn og fararstjórn, staðarleiðsögn eins og við á. Aðgangur í safnið er ekki innifalinn í verði og er valkvæður
Ferð: Eldfjallaeyjan Stromboli (heill dagur)
Dagsetning: 24.09.2026
Tími: Brottför rétt eftir hádegið, komið til baka um miðnætti
Spennandi síðdegisferð þar sem siglt er út í Stromboli sem er ein af Vindeyjunum. (Aeolian eyjaklasinn). Siglt er frá Tropea. Boðið er upp á frjálsan tíma í bænum San Vincenzo en einnig er hægt að fá sér sundsprett í sjónum þar fyrir utan. Hér er staðurinn þar sem saga og goðsagnir mætast og skapa ógleymanleg upplifun. Ekki er vitað hvort gos verður í gangi á þessum tíma en búsesta er á eyjunni allan ársins hring og einnig þegar eldgos er í gangi. Eldvirknin hefur réttilega fært eyjunum viðurnefnið „Viti Miðjarðarhafsins”. Frjáls tími fyrir kvöldverð fyrir brottför frá eyjunni.
Það er rómantískur blær yfir þessari ferð og litafegurð í kóbaltbláa sjónum, rauða hrauninu og gula brennisteininum. Komið til baka rétt fyrir miðnætti. Smelltu hér til að sjá video
Verð: 14.900 kr Innifalið í verði: Akstur, sigling.
Ferðin er með enskri leiðsögn heimamanna
Vínfræðsluferð og smökkun
Dagsetning: 24.09.2026 Fimmtudagur
Tími: kl 15:00, ca 4-5 klst.
Við kynnumst víngerðarhefð í Kalabríu og smökkum á framleiðslunni. Vínekrur í héraðinu hafa haldist mikið innan fjölskyldna þar sem hver kynslóðin á fætur annarri varðveitir aðferðir til vínræktunar. Við heimsækjum fjölskyldurekna vínframleiðslu, fræðumst um víngerðina og fáum að smakka dýrindis vín og smárétti frá svæðinu. Auðvitað gefst færi á að kaupa það sem smakkast best.
Verð: 9.900 kr
Innifalið í verði: Akstur, smökkun á 3-4 víntegundum, smáréttir, íslensk leiðsögn og fararstjórn.
Ferð: Pizzo Calabro Innifalin
Dagsetning: 25.09.2026 Föstudagur
Tími: kl 13:00, ca 4-5 klst.
Pizzo er lítill en heillandi strandbær við Týrenna-hafið, þar sem sögulegur miðbær, fallegar strendur og óviðjafnanlegt útsýni sameinast í einstaka upplifun. Þar er einnig að finna hina einstöku Piedigrotta kirkju, sem er byggð inn í helli og er ein af helstu náttúru- og menningarperlum á svæðinu. Þangað niður þarf að ganga um 140 tröppur og upp aftur, en einnig hægt að bíða á meðan sú heimsókn á sér stað.
Í Pizzo þræðum við þröngar, steinlagðar götur sem bera vitni um hina fornu sögu bæjarins. Einnig virðum við fyrir okkur útsýnið frá einstökum svölum frá aðaltorg bæjarins sem í áttina að Stromboli sem er ein af Vindeyjunum. (Aeolian eyjaklasans).
Eftir spennandi göngu um miðbæinn er viðeigandi að smakka hinn heimsfræga Tartufo ís, sem er órjúfanlegur hluti af sögu bæjarins. Smelltu á hér til að skoða video af Pizzo
Verð: 7.900 kr
Innifalið í verði: Akstur, aðgangur í Piedigrotta kirkjuna, Tartufo ís, íslensk leiðsögn og fararstjórn og staðarleiðsögn.
Ferð: Taormina á Sikiley (heill dagur)
Dagsetning: 26.09.26
Tími: kl 07:00 ca 12-13 klst.
Dagsferð til þessarar sólríku eyju með töfrandi landslag og áhugaveðri menningu. Við keyrum meðfram Goðaströndinni niður til Messínasunds þar sem við tökum ferjuna yfir til Sikileyjar. Þetta er fullkomin byrjun á degi sem tengir saman landslag, menningu og sögu. Frá höfninni keyrum við til hins forna bæjar Taormina þar sem við verjum deginum. Byrjað verður á að heimsækja fornt rómverskt leikhús sem hefur Etnu í baksýn sem er helsta kennileiti Sikileyjar. Við borðum saman hádegisverð á fallegum stað í bænum og njótum þess sem þessi einstaki bær hefur upp á að bjóða. Svo verður frjáls tími til að njóta þess sem Taormina hefur upp á að bjóða, áður en við keyrum og siglum til baka. Sjá video með því að smella á hér
Verð: 25.900 kr
Innifalið í verði: Akstur, ferjusigling, hádegisverður með drykkjum í Taormina, aðgangur í grísk-rómverska leikhúsið, íslensk leiðsögn og fararstjórn og staðarleiðsögn eins og við á.
ATH! Farþegar þurfa sjálfir að athuga hvort opið sé fyrir morgunverð, því lagt er af stað kl. 07:00.
Einnig möguleiki að biðja um nestispakka til að taka með.
Ferð: Tropea og hin sæta og kryddaða Calabria (heill dagur) Innifalin hjá okkur 25. sept
Dagsetning: 27.09.2026
Tími: kl 8:30, ca 8 klst.
Við byrjum daginn í Tropea og kynnumst bænum á göngu þar sem við upplifum hið sanna „dolce vita“ eða hið ítalska ljúfa líf. Við heimsækjum Dómkirkjuna sem er frá tímum Normanna, virðum fyrir okkur útsýnið og mannlífið í bænum. Boðið verður upp á að smakka hið einstaka ‘Nduja, rauðlaukinn frá Tropea og aðra sérstaka framleiðslu frá svæðinu sem vekja bragðlaukana til lífsins.
Eftir hádegið verður farið á Capo Vaticano sem er einstakur útsýnisstaður sem tengist goðsögnum og kristalstærum sjónum. Við endum daginn upp í sveit og borðum mat beint frá býli. Þar kynnumst við einstakri sveitastemmingu með dýrum, vínframleiðslu og heimagerðum mat í anda hinnar sætu og krydduðu Kalabríu. Smelltu hér til að skoða video af Tropea
Verð: 12.900 kr
Innifalið í verði: Akstur,aðgangur í Dómkirkjuna, smakk á allskyns matvælum, síðbúinn hádegisverður með drykkjum, íslensk fararstjórn og staðarleiðsögn.
Ferð: Vindeyjar. Sigling og eldvirkni (heill dagur)
Dagsetning: 27.09.2026
Tími: Brottför um kl 07:00. Komið til baka um kl. 20:00.
Dásamleg sigling og einstakt tækifæri til að kynna sér fegurð nokkurra af hinum sjö Vindeyjum. (Aeolian eyjaklasinn).
Farið verður á land í Stromboli, Lipari og Vulcano og siglt meðfram eyjunni Panarea.
Virk eldfjöll og stórkostlegt útsýni um Týrrenahafið einkenna þessa siglingu. Hver eyja hefur sína sérstöðu og persónuleika. Hægt er að fara í heilsubað í brennisteinshellunum í Vulcano, njóta útsýnisins frá bátnum yfir að „Sciara del Fuoco“ á Panarea eyjunni og virða fyrir eldvirknina og nýlegt hraun. Fallegi miðbærinn á Lipari eyjunni er líka augnayndi en einnig er mögulegt að fara í stutta rútuferð um eyjuna. Einnig verður farið í landi á Stromboli. Smelltu á nöfnin til að skoða video af Lipari, Vulcano og Strompoli
Verð: 14.900 kr
Innifalið í verði: Akstur, sigling. Ferðin er með enskri leiðsögn heimamanna.
ATH! Farþegar þurfa sjálfir að athuga hvort opið sé fyrir morgunverð, því lagt er af stað kl. 07:00.
Einnig möguleiki að biðja um nestispakka til að taka með.
Ath. Hægt er að bóka kynnisferðir þegar ferð er bókuð í gegnum síma 595-1000
ATH. sérstaklega að bóka aukaferðir sem fyrst, svo að þið komist örugglega í þá ferðir en gætið þess að þær rekist ekki á okkar ferðir sem eru innifaldar.
Ath. Verð miðast við farþega í pakkaferðum á vegum Heimsferða
Vinsamlegast athugið að verð og tímasetningar eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, Heimsferðir áskilja sér rétt að breyta slíku án fyrirvara. Athugið að nákvæmar tímasetningar liggja endanlega fyrir rétt fyrir brottför og er öllum farþegum tilkynnt um þær.